Myndabanki þessi var opnaður í byrjun ársins 2002 og fyrstu sjö árin fyrst og fremst hugsaður sem vöruhús gríðarlegs magns ljósmynda sem væri aðgengilegur kaupendum með góðri og skilvirkri leitarvél. Á undanförnum árum hefur hinsvegar orðið mikil þróun í stafrænni ljósmyndun sem og aðgengi að hýsingu og möguleikum til að kynna myndefni með hagkvæmum hætti.
1. janúar 2009 tók M6 Images því nýja stefnu þar sem gæði skipta öllu máli og framsetning mynda þannig að eingöngu hágæða ljósmyndir sem fara í gegnum vandlega flokkun eru birtar hér á vefnum. Ef þú hefur áhuga að kaupa myndir þá sendu okkur tölvupóst á netfangið, info@m6.is með upplýsingum um myndina ásamt fyrirhugaðri notkun og við munum senda þér tilboð eins fljótt og kostur er.
Notkunarskilmálar mynda hér á vefnum eru þannig að það geta allir tekið niður mynd og vistað hana á sína einkatölvu án endurgjalds. Það er hinsvegar ekki leyfilegt að dreifa myndefni áfram til þriðja aðila án samráðs við höfund myndarinnar. Varðandi gjalddtöku fyrir myndir þá er hún mjög mismunandi og fer þá eftir því hvaða tilgangi skal nota myndina og eftir myndefninu sjálfu en leiðbeinandi verðskrá Myndstefs er hér til stuðnings.
þann 16. apríl 2002 tóku gildi lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002. Í lögunum er meðal annars að finna reglur um upplýsingaskyldu þeirra sem veita rafræna þjónustu á Internetinu. Samkeppnisstofnun hefur eftirlit með því að þjónustuveitendur fylgi 6.-7. gr. og 9.-11. gr. laganna í starfsemi sinni. Við viljum eindregið benda viðskiptavinum okkar á að allar nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Samkeppnisstofnunar, www.samkeppni.is.
Hér fyrir neðan er stutt samantekt á lögum um rafræn viðskipti skv. reglum Samkeppnisstofnunar sem er nauðsynlegt fyrir þig sem kaupanda að vita.
Áður en pöntun er gerð:
- Engin tæknileg atriði þarf til að ljúka samningi, þú einfaldlega sendir okkur tölvupóst með upplýsingum um hvaða ljósmynd þú hefur áhuga á að kaupa ásamt fyrirhugaðri notkun og við sendum þér tilboð til baka með tölvupósti.
- Samskiptin eru varðveitt þannig að alltaf er hægt að skoða þau ef einhver ágreiningur kemur upp.
- Verð er alltaf gefið upp með virðisaukaskatti nema um sölu erlendis sé að ræða.
- Þegar neytandi hefur pantað mynd þá er gerður reikningur sem sendur er á viðkomandi aðila og greiðsla kaupanda skal vera framkvæmd innan 15 daga en þá er réttur neytanda til að falla frá samningi runninn út.
- Gildistími tilboðs og tilboðsverðs miðast við 7 daga frá dagsetningu tilboðs og áskilur M6 Images sér fullan rétt til að falla frá tilboði eftir þann tíma.
Við pöntun neytanda (samningsgerð)
- M6 Images staðfestir með tölvupósti að pöntunin sé móttekin og gefur upp hvaða tíma kaupandi má vænta að fá vöruna afhenta.
- Kvartanir skulu berast á netfangið info@m6.is
- Engin skilyrði eru sett af hálfu M6 Images um uppsögn samnings svo framarlega það sé gert innan þeirra 14 daga sem kaupandi hefur skilarétt til. Eftir þann tíma telst samningur fullgildur.
Eftir pöntun neytanda (afhending)
- Skv. lögum skal seljandi afhenda hið selda innan 30 daga frá því pöntun var gerð.
- Skv. lögum skal seljandi endurgreiða söluverðið innan 30 daga notfæri neytandi sér heimild til að falla frá samningi.
Rekstraraðili skv. hlutafélagaskrá:
M6 Images ehf. - Háhæð 3 - 210 Garðabær
kt. 460202-3370 - Vsk.nr: 73831
Netfang: info@m6.is - Sími: 891 9007
Banki: 303-26-6718 |